24.3.2009 | 22:25
Blóð - Fólkið heimtar ...blóð!
Á laugardaginn fagnar hljómsveitin Blóð fyrstu útgáfu sinni en þá kemur út EP platan Fólkið heimtar blóð hjá útgáfufélaginu Brak. Tónleikarnir fara fram á vínveitingahúsinu Grand Rokk við Smiðjustíg laugardagskvöldið 28. mars og hefst gleðin kl. 22:00. Ásamt Blóði mun hljómsveitin Morðingjarnir heiðra gesti með nærveru sinni og spilamennsku auk þess sem boðið verður upp á léttar veitingar.
Aðgangur er ókeypis og verður platan til sölu á staðnum fyrir litlar 1000 kr.
Það er skyldumæting!!!
Athugasemdir
Skemmtilegt að heira hljómsveit syngja á íslensku. Reyni að mæta.
Húnbogi Valsson (IP-tala skráð) 24.3.2009 kl. 22:53
PÖNK! MEIRA PÖNK!
Berglind (IP-tala skráð) 25.3.2009 kl. 09:20
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.