25.11.2009 | 23:31
Ronnie James Dio með krabbamein!!!
Ronnie James Dio hefur greinst með magakrabbamein. Wendy Dio, eiginkona og umboðsmaður meistarans, staðfesti þetta í dag.
Krabbameinið er á byrjunarstigi og því eru batahorfur betri en ella.
Hljómsveitin Dio var bókuð í Englandi í nóvember og var sjálfur Doug Aldrich bókaður með í för en hann átti að leysa Craig Goldie af á þessum giggum.
Ég óska goðina að sjálfsögðu skjótum bata og smelli Killing the dragon á fóninn, svona rétt til að sýna stuðning!
Athugasemdir
Vonadi nær karlinn sér, skelli "Mob Rules" á fóninn.
SeeingRed, 26.11.2009 kl. 02:01
Æææ. Var að frétta þetta frá einum kunningja mínum.
Ég óska elsku kallinum góðs bata.
Gunnhildur Reynisdóttir (IP-tala skráð) 26.11.2009 kl. 18:11
Það verður svo sannarlega sorglegt ef að þessi rokkkóngur hverfur úr tónlistarheiminum! Vona að hann nái sér kallinn!!
Dagur Björnsson, 26.11.2009 kl. 22:35
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.